Takk fyrir að sýna mér áhuga!

Ég heiti Dóra og er 55 ára! Ég hef glímt við maga- og meltingavandamál frá því ég var unglingur, í meginatriðum þá leið mér svona alla daga ... 

  • Með útþaninn maga
  • Með kviðverki og krampa
  • Með bauga undir augum
  • Alltaf með hausverk, þreytt og pirruð
  • Með sveppasýkingu í áskrift
  • Með minni elsku til sjálfs míns
SKOÐA NETVERSLUN

Lausnina fann ég fyrir tilviljun, en ég trúi samt ekki á tilviljanir ❤️

Ég fór að drekka Aloe Vera Gel, þ.e. gelið sem kemur innan úr aloe plöntunni ❤️ 

Í dag þá líður mér frábærlega, er orkumikil, meltingin góð, flatur magi, fæ aldrei sýkingar og ónæmiskerfið er að gera alvöru gagn. Smelltu 👉 hér til að lesa allt viðtalið eða skrollaðu niður👇

Flestir sem drekka aloe hafa greint frá sinni reynslu og þeirra vitnisburður er að aloe vera virkar meðal annars vel á; meltinguna, ónæmiskerfið, bólgur, sóríasis, sveppasýkingar, gigt, jafnvægi meltingavegarins, orkuna og exem. 

Forever eða The Aloe Vera Company er heimsins stærsti ræktandi, framleiðandi og dreifingaraðili á hreinu náttúrulegu aloe vera. Hugtakið „frá plöntu til vöru til þín“ hefur verið lífsspeki fyrirtækisins í yfir 40 ár.

Hvernig aloe er best? 

Allir aloe drykkirnir innihalda hreint gel innan úr aloe laufinu, eru án rotvarnarefna, glútens og sykurs. Hyrnan er 1 lítri. Munurinn er bragðið!

  • Aloe Vera Gel – 99,7% hreint gel og C-vítamín
  • Aloe Berry Nectar – 90,7% hreint gel, C-vítamín, trönuber og eplasafi.
  • Aloe Peaches – 84,3% hreint gel, C-vítamín og ferskjuþykkni.
  • Aloe Magno – 86% hreint gel, C-vítamín og mangómauk.

Ef ég vil prófa!

Þú getur keypt aloe og prófað, ef þér líkar ekki varan eða þú finnur engann árangur, máttu skila tómum umbúðum innan 60 daga og þú færð endurgreitt að fullu 😲 ekkert smáaletur.

Stakur aloe drykkur kostar 4.199 kr.

Safatilboð eru 3 saman á 10.700 kr.

Smelltu 👉 hér fyrir spurningar og svör eða skrollaðu niður 👇

Algengar spurningar

Af hverju Aloe frá Forever?

Við erum heimsins stærstu ræktendur og framleiðendur af hreinu náttúrulegu aloe vera. Frá upphafi ræktunar aloe plöntunnar og að þeim tíma sem varan er komin í þínar hendur er ferlið allt í okkar höndum. Hugtakið „Frá plöntu til vöru til þín“ er lífsspeki Forever. Með þessu getum við gæðatryggt ræktunina, uppskeruna og framleiðsluna, allt til að þú fáir hágæða vöru og getir notið góðs af á bestu kjörum.

   

Hver er munurinn á þessum drykkjum?

Bragðið! Aloe Vera Gel inniheldur bara aloe og smá C-vítamín! Hinir drykkirnir eru byggðir upp af Aloe Vera Gel með viðbættum ávöxtum til að bæta bragðið. Aloe Berry Nectar inniheldur trönuber og epli, Aloe Peaches inniheldur ferskjuþykkni sem gerir þennan drykk bestann á bragðið! Ávextirnir í Peaches og Berry gera það að verkum að safarnir eru ekki sykurlausir. 


Hvað gerir aloe fyrir mig?

Aloe hefur löngum verið þekkt sem brunaplantan og þekkja það flestir sem einstaklega græðandi gel á húðina. Rannsóknir hafa sýnt að með aloe grær allt 30% hraðar. Ímyndaðu þér að drekka Aloe – öll þau holu líffæri frá munnopi og niður eru úr sama efni og húðin. Aloe virkar eins að innan og utan. Aloe styður við heilbrigði meltingavegarins og upptaka næringarefna verður allt að þrítugfalt betri. Aloe inniheldur meltingarensím og hátt hlutfall C-vítamíns. Aloe er líka gott fyrir ónæmiskerfið.

Flestir sem drekka aloe hafa greint frá sinni reynslu og þeirra vitnisburður er að Aloe Vera virkar vel á; meltingu, ónæmiskerfið, bólgur, sóríasis, sveppasýkingu, gigt, jafnvægi meltingavegarins, orkuna og exem, svo eitthvað sér nefnt.


Má ég skila?

Já! Við bjóðum 60 daga skilyrðislausan skilarétt. Þú prófar vöruna og ef þér líkar hún ekki máttu skila því sem eftir er af henni eða tómum umbúðum innan 60 daga og þú færð endurgreitt að fullu - ekkert smáaletur hér!


Ef þú ert með spurningu er þér velkomið að hafa samband við mig: dora(a)nokki.is | m.me/dora.magnus | s. 820 2208  

Vikuviðtalið í heild sinni:

Fyrir aðeins fjórum árum var Dóra [Halldóra] orkulítil, pirruð og með bauga undir augum. Hún hafði þjáðst af meltingartruflunum frá því á unglingsárum og hélt að lífið væri bara svona. Þá kynntist hún aloe vera safanum og líðan hennar gjörbreyttist.  

Dóra er núna geislandi af orku og vinnugleði en hvenær fór hún fyrst að finna fyrir þessum einkennum?  

„Í raun byrjaði þetta þegar ég var unglingur. Ég greindi verkina ekki sem meltingartruflanir því ég gerði mér ekki alveg grein fyrir hvað var að. Ég var oft með kviðverki sem ekki tengdust tíðarhringnum. Var auk þess með mikla hægðatregðu.  

Þar að auki var þetta mér mikið feimnismál og á þessum tíma ræddi fólk sjaldan um svona vandamál við vini og vinkonur. Ég fékk reglulega magakrampa á þessum árum og fór þrisar til fjórum sinnum í viku í rúmið á kvöldin með slæm krampaköst.  

Ég eignaðist fjögur börn á átta árum og fór því nokkuð oft til kvensjúkdómslæknis. Hann greindi hjá mér þarmastíflu og sagði mér að passa upp á meltinguna. Ég vissi hins vegar ekkert hvað ég átti að gera. Mér var aldrei sagt hvernig ég ætti að fara að því. Ég reyndi ýmislegt, reyndi að bjarga mér sem best ég gat. Ekkert af þessu virkaði hins vegar á mig.“  

„Ég er alin upp á hefðbundnum íslenskum mat, fiskur og lamb. Þótt ekki hafi verið mjög mikið grænmeti á boðstólum þegar ég var barn kynntist ég ekki skyndibitafæði fyrr en ég varð unglingur.  

Þegar ég kynntist aloe vera safanum gerði ég mér fyrst grein fyrir hvað ég var orðin slæm og hversu rík áhrif á allt mitt líf þessi einkenni höfðu. Ég var farin að fá sveppasýkingar einu sinni í mánuði. Reyndar vissi ég að ef ég hætti að borða sykur, sleppti öllum kolvetnum úr fæðunni og hætti að drekka kaffi þá gæti ég að öllum líkindum haldið sveppunum niðri. Ég vildi hins vegar helst borða bara það sem mér þótti gott þannig að það gat reynst erfitt að útiloka allar fæðutegundir sem innihéldur kolvetni og sykur auk koffíns.  

Ég var líka alltaf með höfuðverk sem hugsanlega gat stafað af vöðvabólgum. Eftir að ég fór að taka aloe vera safann hurfu öll þessi einkenni og því tel ég að þau hafi hreinlega stafað af næringarskorti þar sem ég vann ekki nógu vel úr fæðunni. Á aðeins þremur vikum fann ég mun á líðan minni og eftir þrjá mánuði var ég orðin rosalega fín og mér batnaði með hverjum deginum sem leið.“  

„Dökku baugarnir undur augunum eru alveg horfnir,“ segir hún, „Hárið er betra en áður og húðin líka. Það voru ýmis smáatriði sem maður sættir sig við að gerist af því að maður sé að eldast. Áður en ég fór að taka safinn sætti ég mig við að lifa með þessum einkennum.  

Margar konur finna fyrir skapsveiflum á meðan á tíðarhringnum stendur og ég fann það líka af og til. Aloe Vera safinn virðist jafna þær út og ég hef náð mun betra andlegu jafnvægi. Ég sóttist mjög eftir að ná ákveðinni slökun og ró og nú finnst mér það hafa tekist. Áður þurfti ég einnig að eiga tvær fatastærðir því maginn var svo útþaninn á kvöldið að ég gat ekki notað sömu fötin og ég komst í á morgnana. Ég hef alltaf verið grönn en þrátt fyrir það fannst mér ég ekki geta klæðst öðru en víðum fötum því það er ekkert smart að vera með kviðinn út í lofið.  

Þetta hafði svo sem ekki góð áhrif á kynlífið heldur því sá sem er með magakrampa, sveppasýkingu og útþaninn kvið hugsar sjaldnast um annað en að hjúfra sig undir sæng og fara að sofa á kvöldin. Líðan mín hafði þannig áhrif á alla þætti lífs míns. Ég varð líka þyngri í skapi, hafði minna gaman af að hafa mig til og fór þar af leiðandi sjaldnar út. Fæstir í kringum mig, fyrir utan manninn minn, höfðu þó hugmynd um að mér liði illa. Ég sagðist alltaf hafa það fínt ef ég var spurð og í raun gerði ég mér varla sjálf grein fyrir að líðan mín væri verri en við mætti búast fyrr en mér fór að líða betur. Ég hélt að stór hluti af þessum einkennum fylgdi því að eldast.“

„Í dag er ég loks farin að átta mig á hvaða fæðutegundir ég þoli og hverjar ekki,“ segir Dóra. „Ég byrjaði að finna fyrir alvarlegum meltingatruflunum á unglingsaldri en það er fyrst núna sem mér hefur tekist að finna út hvað sé best fyrir mig að borða. Ég skil til dæmis í dag hvers vegna ég gat aldrei borðað jógúrt þegar ég var barn og hvers vegna ég kúgaðist þegar ég reyndi að borða skyr.  

Grófir trefjar á ég einnig erfitt með að þola. Þessi klassísku ráð til að bæta meltinguna þ.e. meiri trefjar, áttu því alls ekki við í mínu tilfelli. Flestar konur kannast við að fá „æði“ fyrir einhverjum tilteknum fæðutegundum, m.a. þegar þær eru ófrískar. Líkaminn er venjulega að kalla á einhver efni sem hann vantar. Ég man ekki eftir að hafa fengið slíkt fyrr en á þriðju meðgöngu. Þá sótti ég ótrúlega mikið í grænt grænmeti. Ég var og er rosalegur gikkur og borða eingöngu það sem mér þykir gott.  

Flestir taka það sem sjálfsögðum hlut að þeim líði vel líkamlega. Ef eitthvað bjátar á fara þeir til læknis og fá lyf sem í flestum tilfellum slá á einkeinnin en lækna ekki orsökina. Ég veit hins vegar að um leið og meltingin komst í lag hjá mér sá líkaminn sjálfur um að laga það sem eftir var. Aloe Vera safinn hreinsar líkamann innan frá og skilar eiturefnunum úr.“  

Dóra hefur trú á því að sé meltingarvegurinn hreinn skila það sér til allra annarra líffæra. Líkamleg vellíðan skili sér í meiri andlegri orku og gleði. Hún þakkar aloe vera safanum þessa miklu breytingu. Það vekur henni hins vegar undrun hversu auðvelt hún átti með að sætta sig við líðan sína áður nú þegar hún veit hvernig hraust fólk hefur það almennt.